Opnun tilboða
Hringvegur (1) um Steinavötn og Fellsá (EES útboð)
Tilboð opnuð 5. nóv. 2019. Smíði nýrra brúa yfir Steinavötn og Fellsá ásamt uppbyggingu á Hringvegi í Suðursveit á tveimur köflum beggja megin brúa. Veita skal ám undir nýjar brýr og eftir að vegtenging er komin á þær skal fjarlægja bráðabirgðabrýr og –vegi og gera leiðigarða við enda brúar yfir Steinavötn.
Helstu magntölur vegna vega eru:
- Skeringar 6.365 m3
- Fyllingar 19.685 m3
- Burðarlag 2.345 m3
- Tvöföld klæðing 11.585 m2
- Fláafleygar 6.886 m2
- Ræsagerð 84 m
- Grjótvörn 3.995 m3
- Bráðabirgðabrú 20,6 m
Helstu magntölur vegna brúa eru:
- Vegrið 352 m
- Gröftur 5.100 m3
- Bergboltar 42 stk.
- Mótafletir 3.569 m2
- Steypustyrktarstál 201,5 tonn
- Spennt járnalögn 41,1 tonn
- Steypa 2.296 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. apríl 2021.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Þ.S. verktakar ehf., Egilsstöðum | 1.349.097.726 | 177,2 | 578.671 |
Spennt ehf., Reykjavík | 1.232.473.128 | 161,9 | 462.046 |
Rizzani De Eccher Íslandi og Rizzani De Eccher SpA | 1.230.970.840 | 161,7 | 460.544 |
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík | 996.651.608 | 130,9 | 226.225 |
ÞG verktakar, Reykjavík | 965.788.336 | 126,9 | 195.361 |
Eykt ehf., Reykjavík | 886.111.603 | 116,4 | 115.685 |
Þingvangur ehf., Reykjavík | 865.620.560 | 113,7 | 95.194 |
Ístak hf., Mosfellsbæ | 770.426.853 | 101,2 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 761.360.000 | 100,0 | -9.067 |